taekniransoknir

Nýsköpunarmiðstöð kemur að framkvæmd rannsókna sem miða að því að koma sérhæfðri þekkingu út í atvinnulífið



Nýsköpunarmiðstöð

Nýsköpunarmiðstöð Íslands kemur að framkvæmd rannsókna og tekur virkan þátt í rannsóknarverkefnum á ákveðnum rannsóknasviðum sem allar miða að því að koma sérhæfðri þekkingu út í atvinnulífið. Auk þess sinnir stofnunin eftirliti með framkvæmdum, forprófunumá efnum og þróun á aðferðum. Mörg verkefni eru unnin í erlendu samstarfi til að auka tengsl og þekkingu íslenskra fyrirtækja.

Mannvirkjarannsóknir - helstu fagsvið eru burðarþol, efnistækni, endurnýting efna, jarðvegsfyllingar, húsbyggingartækni, hljóðtækni og yfirborðsmeðhöndlun

Efnagreiningarstofa almennar efnamælingar og greiningar tengdar iðnaði, landbúnaði  og umhverfisvöktun

Efnis-, líf- og orkutækni  - rannsóknir og prófanir á sviði efnisgæða og umhverfisáhrifa

Efnisfræði og steinsteypa  - sérhæfing og sérfræðiþekking í flotfræði sementsbundinna efna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica