Ráðgjöf og námskeiðVið búum yfir mikilli þekkingu og reynslu sem við viljum fyrir alla muni miðla til þín. Nú eru góð ráð ódýr!


NýsköpunarmiðstöðNýsköpunarmiðstöð Íslands miðlar þekkingu og veitir stuðningsþjónustu fyrir frumkvöðla og sprota- og nýsköpunarfyrirtæki auk þess að stunda tæknirannsóknir á ákveðnum sérsviðum. Í boði er fjölbreytt þjónusta og stuðningsverkefni sem hvetja til vöruþróunar, nýsköpunar, hagnýtingar hönnunar og mótunar viðskiptahugmynda.

Á árinu 2010 sóttu yfir 6.000 einstaklingar og 500 fyrirtæki sérþekkingu til okkar!



Ferðamálastofa Byggðastofnun Orkustofnun

Árlega stendur Ferðamálastofa fyrir námskeiði fyrir starfsfók upplýsinga-miðstöðva og hefur einnig út leiðbeiningarrit fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva.

Þróunar- og markaðsverkefni á sviði heilsuferðaþjónustu og menningarþjónustu eru meðal stuðningsverkefna sem Ferðamálastofa kemur að. (vantar linka)

Stofnun hefur gefið út ýmsar handbækur og leiðbeiningarrit, meðal annars um uppbyggingu tjaldsvæða, merkingu gönguleiða og handbók um merkingar á ferðamannastöðum og friðlöndum.

Listi yfir sjálfstætt starfandi
ráðgjafa
í ferðaþjónustu.



Orkustofnun býður áhugasömum aðilum upp á almennar kynningar og fræðslu um starf OS, orkusparnað, orkunýtingu og orkumál almennt.

Stofnunin hefur gefið út ýmsar handbækur og annað efni, ætlað sem leiðbeiningar fyrir þá sem vilja spara eða virkja orku. 

Jafnframt sinnir raforkueftirlit Orkustofnunar þeim notendum sem telja raforkufyrirtækin hafa brotið á sér.

Bókasafn Orkustofnunar er sérfræðisafn í orkumálum, auðlindanýtingu og jarðvísindum. Safnið er opið landsmönnum öllum.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica