leyfis-gaedamalÞað er mikilvægt að öllum formsatriðum sé fullnægt þegar kemur að lögum, reglugerðum, vottun og flokkun.

Rétt skal jú vera rétt! 


Nýsköpunarmiðstöð Íslands Ferðamálastofa Byggðastofnun

Nýsköpunarmiðstöð Íslands framkvæmir greiningar, prófanir, mælingar á sínum sérsviðum auk þess að veita upplýsingar um flest það sem lýtur að stofnun og rekstri fyrirtækja

  • Stofnun og rekstur fyrirtækja upplýsingar um lög og reglur, réttindi og skyldur í tengslum við stofnun og rekstur fyrirtækja
  • Staðlar og vottanir - vottun á byggingarvörum og umsögn í samræmi við ákvæði í lögum og reglugerðum
  • Prófanir - þjónusta við prófanir á steypu og steypuefnum, timbri, málmum, plastefnum og öðrum efnum
  • Tjónagreiningar - þjónusta við greiningar á tjónum

Útgáfa leyfa, skráning á starfsemi og eftirlit með að skilyrðum fyrir þeim sé fullnægt eru samkvæmt lögum um skipan ferðamála eitt af hlutverkum Ferðamálastofu.  Um þrenns konar leyfis- og skráningarskylda starfsemi er að ræða. 


Orkustofnun veitir leyfi til rannsókna, leitar, nýtingar og virkjunar fyrir eftirfarandi flokka:

  • Auðlindir í jörðu - leyfi til rannsókna og nýtingar á jarðhita, jarðefnum og grunnvatni.
  • Auðlindir á hafsbotni - leyfi til rannsókna og nýtingar á auðlindium í eða undir hafsbotni Íslands samkvæmt lögum og alþjóðasamningum.
  • Raforka -  leyfi til að reisa og reka dreifikerfi sem og flutningsvirki. Leyfi til að stunda raforkuviðskipti og virkjunarleyfi.
  • Kolvetni - leyfi til leitar, rannóknar og vinnslu á kolvetni (olíu og gasi).

Orkustofnun annast jafnframt eftirlit með leyfum veittum til framkvæmdar leitar, rannsókna og vinnslu samkvæmt viðkomandi reglugerð.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica