Fjármögnun

styrkir-fjarmognun

Einstaklingum og fyrirtækjum bjóðast fjölbreyttir styrkir og fyrirgreiðsla. Það borgar sig að kynna sér möguleikana.

 


Orkustofnun Byggðastofnun

Á heimasíðu Nýsköpunarmiðstöðvar er að finna finna ítarlegt yfirlit yfir þá styrkjamöguleika sem í boði eru fyrir frumkvöðla og lítil og meðalstór fyrirtæki á Ísland.

Hér er um að ræða hvorutveggja yfirlit yfir styrki og stuðningsmöguleika sem Nýsköpunarmiðstöð sér um framkvæmdina á en líka yfirlit yfir aðra möguleika sem í boði eru í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi.


  • Atvinnuþróunarfélög á hverju svæði auglýsa styrki á heimasíðum sínum.
  • NORA er hluti af norrænu samstarfi á sviði byggðamála og svæðasamstarfs sem veitir styrki til verkefna sem stuðla að eflingu atvinnulífs og byggða.
  • NPP eflir atvinnu-  efnahags-  og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.


Ferðamálastofa Nýsköpunarmiðstöð

 
 

Ferðamálastofa sér um rekstur Framkvæmdasjóði ferðamannastaða en markmið og hlutverk sjóðsins að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Sjóðurinn auglýsir eftir styrkjum tvisvar á ári.

Ferðamálastofa veitir árlega styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum. . Þá heldur stofnunin utan um styrkveitingar frá NATA, , ferðamálasamstarfi Íslands, Færeyja og Grænlands.

Einnig eru í boði styrkir til markaðsmála og í tenglsum við ýmis tímabundin þróunarverkefni. Listi yfir þá styrki sem eru í boði má finna á
vef Ferðamálastofu



Byggðastofnun Byggðastofnun

 
 
 
 

Byggðastofnun á hlut í nokkrum eignarhaldsfélögum sem meðal annars kaupa hlutafé í félögum á sínu starfssvæði. Eignarhaldsfélögin eru:  Eignarhaldsfélag Suðurnesja, Eignarhaldsfélag Suðurlands og Hvetjandi á Vestfjörðum sem er vistað hjá Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða.


Byggðastofnun veitir langtímalán til fjárfestinga, hagræðingar og fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja á landsbyggðinni. Lánað er allt að 75% af framkvæmdakostnaði eða kaupverði á fasteign, 60% af skipi og kvóta og 40% í vélum og tækjum. Veð eru tekin í þeirri fasteign  skipi eða tæki sem lánað er til.

Hér má finna nánari upplýsingar um lán stofnunarinnar, eyðublöð og leiðbeiningar.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica